Ríkisstjórnin og Landssamtök lífeyrissjóða undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um aðgerðir í þágu yfirveðsettra heimila með lánsveð til íbúðarkaupa. Felur hún í sér að þeir sem fengu lánsveð til íbúðarkaupa fái hliðstæða lausn og var samkvæmt hinni svokölluðu 110% leið. Ríkissjóður mun standa straum af langstærstum hluta kostnaðarins við þessa leið.

Þannig yrðu eftirstöðvar húsnæðislána með lánsveð, sem tekin voru fyrir 1. janúar 2009, færðar niður að 110% af verðmæti fasteignar lántaka að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Samkvæmt tilkynningu er áætlað að þessi aðgerð geti náð til um 2.000 heimila og að heildarniðurfærslan geti numið um þremur milljörðum króna. Þátttaka lífeyrissjóðanna er m.a. háð því skilyrði að aðgerðin feli ekki í sér skerðingu á fjárhagslegum hagsmunum sjóðfélaga. Í yfirlýsingunni er gengið út frá því að hlutur lífeyrissjóða svari til 12% af heildarkostnaði en ríkisvaldið tryggi greiðslu á 88% þeirrar niðurfærslu á skuldum tryggðum með lánsveðum, sem aðgerðin tekur til.

Áður en hægt er að framkvæma aðgerðirnar þurfa aðilar viljayfirlýsingarinnar að uppfylla eftirfarandi skilyrði.

  1. 1. Að ríkisstjórnin afli nauðsynlegra lagaheimilda til þess að skuldbinda ríkissjóð til greiðslu á sínum hluta í lækkun eftirstöðva lánsveðslána.
  2. Að samráð hafi verið haft við Fjármálaeftirlitið, Eftirlitsstofnun EFTA og Samkeppniseftirlitið
  3. Að stjórnir hlutaaðeigandi lífeyrissjóða hafi staðfest samkomulag um efnið að fengnu áliti um lögmæti skuldbindinga skv. samkomulaginu.

Gangi aðgerðin eftir munu lífeyrissjóðirnir annast framkvæmd skuldaaðlögunarinnar og er ráðgert að hún komi til framkvæmda fyrir lok þessa árs. Nánari upplýsingar má sjá í viljayfirlýsingunni sem nálgast má hér.