Í gær tók Samkeppniseftirlitið þá ákvörðun að ekki væri tilefni til að hafast frekar að varðandi kaup Exista hf. á öllu hlutafé í Skiptum hf.

Þann 27. mars s.l. lagði Exista hf. fram yfirtökutilboð í öll hlutabréf Skipta hf. og var yfirtökutilboðið háð því eina skilyrði að samkeppnisyfirvöld samþykktu kaupin.

Samkvæmt framansögðu hefur eina skilyrði yfirtökutilboðs Exista hf. verið uppfyllt og er sérhvert samþykki við tilboðinu skuldbindandi og óafturkallanlegt.