Þann 17. febrúar 2015 var undirritaður kaupsamningur milli Regins hf. og Fastengis ehf. um kaup á öllu hlutafé í Fjárvara ehf., Bréfabæ ehf., og Sævarhöfða 2 ehf. og þar með sex milljarða fasteignasafni í eigu félaganna. Kaupsamningurinn innihélt meðal annars fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Samkeppniseftirlitið hefur nú birt niðurstöðu sína, en samkvæmt henni telur Samkeppniseftirlitið að kaup Regins hf. á ofangreindum félögum feli í sér samruna í skilningi 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reginn til Kauphallarinnar.

Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast vegna samrunans.