Skipuð hefur verið nefnd til að stýra samruna Icelandic USA og Samband of Iceland. Frá Samband of Iceland eru í nefndinni Ævar Agnarsson forstjóri og Daniel Murphy sölu ? og markaðsstjóri. Frá Icelandic USA eru Magnús Gústafsson forstjóri og Bud Jones sölu ? og markaðsstjóri. Formaður nefndarinnar er Ellert Vigfússon framkvæmdastjóri Sjóvíkur. Stefnt er á að sameiningin muni eiga sér stað 1. júlí 2005 og mun nefndin vinna að því að samþætting rekstrar félaganna gangi hratt og vel fyrir sig. Sameinað félag mun heita Icelandic USA, Inc.

Fyrir samrunann í Bandaríkjunum mun samruni móðurfyrirtækjanna á Íslandi ganga í gegn. Í þeim tilgangi verða haldnir hluthafafundir þann 30. maí. Þá verður einnig kosin stjórn í sameinuðu félagi.