Í Viðskiptaþættinum í dag verður rætt við Knút G. Hauksson forstjóra Samskipa en afkoma síðasta árs liggur fyrir. Þar vekur auðvitað athygli að hagnaður félagsins jókst um 90% á milli ára og var síðasta rekstrarár það besta í sögu Samskipa. Í lok þáttarins verður síðan rætt við Hrund Rudólfsdóttur sem kosin var formaður SVÞ í gær.

Í millitíðinni mæta sérfræðingar greiningardeildanna, þau Anna Margrét Guðjónsdóttir frá greiningu Íslandsbanka og Bjarki Logason frá greiningardeild Landsbankans til að ræða þær breytingar sem eru að eiga sér stað á Bakkavör um þessar mundir.