Stjórn Samson eignarhaldsfélags ehf. óskaði í gær eftir því við Héraðsdóm Reykjavíkur að félaginu yrði veitt heimild til greiðslustöðvunar.

Beiðnin var tekin fyrir kl: 15:00 og var félaginu veitt heimild til greiðslustöðvunar allt til þriðjudagsins 28. október 2008 klukkan 15:00.

Var Gunnar Sturluson, hrl., Logos lögmannsþjónustu sf., skipaður aðstoðarmaður félagsins á greiðslustöðvunartímabilinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinar.