Applicon, sem er í eigu Nýherja hf., hefur verið valið besti samstarfsaðili SAP í Danmörku fyrir árið 2008. Viðurkenningin er fyrir sölu- og markaðsstarf og þekkingu á SAP lausnum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýherja en valið náði til allra samstarfsaðila SAP í Danmörku.

„Viðurkenningin er mikill heiður fyrir okkur og hefur verulega þýðingu  fyrir sölu- og markaðsstarf félagsins," segir Ingimar G. Bjarnason framkvæmdastjóri Applicon á Íslandi í tilkynningunni.

Hann segir samstarf Applicon og SAP sífellt að aukast, en sem dæmi hafi félagið verið valinn einn af þremur samstarfsaðilum SAP á Norðurlöndum til þess að annast sölu og þjónustu á Business Objects, sem er leiðandi í viðskiptagreind (Business Intelligence).