Sérstakur saksóknari hefur dregið til baka ákæru á hendur Erlendi Magnússyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Glitni. Ákæran, sem gefin var út í ágústbyrjun, varðaði meint innherjasvik þegar hann seldi hluti félagsins Fjársjóðs ehf. í Glitni fyrir tíu milljónir króna þann 26. mars 2008, en Fjársjóður var í eigu Erlends og Konu hans. Erlendur er ósáttur við þátt Fjármálaeftirlitsins í málinu.

Erlendur segist í samtali við VB.is vera ánægður með ákvörðun Sérstaks saksóknara. „Mál ákæruvaldsins var mjög veikt og að sama skapi var ég með sterkar varnir og er því sannfærður um að mér tekist að sýna fram á sakleysi mitt fyrir dómi, en mér létti þegar ég heyrði af ákvörðun saksóknara á mánudagskvöld. Niðurstaða hefði hugsanlega ekki legið fyrir fyrr en eftir tvö ár og slíkt tekur á fólk, andlega, líkamlega og fjárhagslega.“

Hann segir að burtséð frá sekt eða sakleysi felist refsing í ákæru. „Það er gríðarlega íþyngjandi fyrir hvern mann að sæta ákæru og í því felst í raun refsing, óháð því hvort menn eru að lokum fundir sekir eða sýknaðir.“

Rannsókn á máli Erlends hófst eftir kæru Fjármálaeftirlitsins til sérstaks saksóknara. Erlendur segir að eftir rannsókn sem stóð í rúm tvö og hálft ár hafi saksóknari komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til að ákæra í málinu. „FME vildi hins vegar ekki sætta sig við þau málalok og krafðist þess að ríkissaksóknari hlutaðist til í málinu. Ríkissaksóknari gerði sérstökum saksóknara svo að ákæra í þessum tiltekna hluta málsins. Í ferlinu var ekki rétt staðið að hlutunum og frestir runnu út og var ákæran því dregin til baka á mánudaginn.“

Erlendur segist afar ósáttur við afskipti FME af málinu. „Ég velti því fyrir mér hvort Fjármálaeftirlitið hafi heimild til að skipta sér með þessum hætti af ákæruvaldinu. Þá hugsa ég líka að þetta mál endurspegli gallann við embætti sérstaks saksóknara. Það embætti var ekki sett upp til að rannsaka glæpi tengda hruninu, heldur bókstaflega að finna þá. Hundruð manna hafa fengið réttarstöðu sakbornings og ég er sannfærður um að mikill meirihluti þeirra muni aldrei sæta ákæru.“