Forráðamenn ferðaþjónustufyrirtækisins Iceland Excursions Allrahanda íhuga að hætta þátttöku í verkefninu „Ísland allt árið.“ Ástæðan er hugmynd fjármálaráðherra að hækka virðisaukaskatt á gistingu úr 7% í 25,5%.

Í  tilkynningu frá fyrirtækinu segir að hugmyndinni vinni freklega gegn markmiðum átaksins, sem er samstarfsverkefni stjórnvalda og aðila í ferðaþjónustu sem á að fjölga ferðamönnum hér á landi að vetrarlagi um 12% á ári og stuðla að aukinni verslun þeirra um 1,6 milljarða króna á tímabilinu.

Þá segir í tilkynningunni að hækkun gistikostnaðar muni skila því að ferðamönnum fækki sjálfkrafa og muni væntingar um 12% fjölgun þeirra yfir veturinn verða að engu.

„Hækkun virðisaukaskatts um 2,5 milljarða króna á ári fer síðan gott með að hirða þá fjármuni sem áttu að fara í aukna verslun. „Ísland allt árið“ er því í raun sjálfhætt,“ segir í tilkynningunni.

Og áfram segir:

„Ríkisvaldið getur þá sparað sér þær 300 milljónir sem það ætlaði að setja í verkefnið og ferðaþjónustan sömu upphæð – og veitir víst ekki af til að eiga eitthvað smáræði upp í þá hækkun á virðisaukaskattinum sem fyrirtækin þurfa að taka á sig ef fjármálaráðherra er virkilega alvara með þessari gölnu hugmynd.“