Seðlabankastjóri hefur ákveðið að Þórarinn G. Pétursson, starfandi aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, skuli sitja í peningastefnunefnd.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum en í nefndinni sitja, auk Þórarins, Svein Harald Øygard seðlabankastjóri, sem er formaður nefndarinnar, og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri. Þá skipar forsætisráðherra tvo sérfræðinga í nefndina.