Seltjarnarnesbær hefur samið við Nýherja um rekstur upplýsingatæknikerfa bæjarins til næstu fimm ára. Nýherji mun annast rekstur upplýsingakerfa bæjarins. Það á bæði við um notendaþjónustu við stofnanir þess og útvistun á miðlægum tæknibúnaði, s.s. rekstur netþjóna og netkerfa.

Fram kemur í tilkynningu að samhliða þessu hyggst Seltjarnarnes skipta út hefðbundnum tölvum úr tölvuverum sínum fyrir sýndartölvur, sem eru smávélar án stýrikerfa, diska, minnis og örgjörva og eru talsvert ódýrari í rekstri en hefðbundnar PC tölvur.

„Stjórnendur Seltjarnarnesbæjar hafa treyst okkur fyrir upplýsingakerfum sínum síðastliðin 10 ár. Það verður ánægjulegt að fá að viðhalda og þróa samstarfið enn frekar og tryggja að Seltjarnarnesbær njóti áfram snjallari lausna í upplýsingatækni,“ segir Finnur Oddsson aðstoðarforstjóri Nýherja, í tilkynningu.