Fyrirhugaðir eru miklir flutningar sendiherra í ár og hefur nú borist samþykki hlutaðeigandi stjórnvalda. Dagsetningar flutninga miðast við 1. nóvember nk. Kjartan Jóhannsson lætur af störfum sem sendiherra í Brussel og Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra í Genf flyst til Brussel.
Kristinn F. Árnason, sendiherra, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu flyst til Genfar og Jón Egill Egilsson, sendiherra tekur við varnarmálaskrifstofu. Jón Baldvin Hannibalsson lætur af störfum sem sendiherra í Helsinki og Hannes Heimisson, aðalræðismaður í New York flyst til Helsinki sem sendiherra.

Svavar Gestsson sendiherra í Stokkhólmi flyst til Kaupmannahafnar og Guðmundur Árni Stefánsson alþingismaður tekur við starfi sendiherra í Stokkhólmi. Þorsteinn Pálsson lætur af störfum sem sendiherra í Kaupmannahöfn og Guðmundur Eiríksson sendiherra í Ottawa tekur leyfi frá störfum. Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri tekur við sem sendiherra í Ottawa.

Sigríður Ásdís Snævarr flyst frá alþjóðaskrifstofu á skrifstofu ráðuneytisstjóra og verður staðgengill hans.

Þeir Guðmundur Árni Stefánsson og Markús Örn Antonsson koma til starfa í ráðuneyti frá 1. september áður en þeir taka við embætti í Stokkhólmi og Ottawa.