SÍF hf. hefur selt öll hlutabréf sín í Icelandic Group hf. (SH) að nafnverði 88.438.077 sem jafngildir 4,08% hlut. SÍF eignaðist hlutabréfin í kjölfar samruna Sjóvíkur ehf. og Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna (SH) en SÍF átti tæplega 13% eignarhlut í Sjóvík ehf. Söluhagnaður hlutabréfanna er um 5,5 milljónir evra (430 milljónir króna) sem bókast á 2. ársfjórðungi yfirstandandi reikningsárs sem nær frá 1. janúar til 30. júní 2005.