Á aðalfundi Félags kvenna í atvinnulífinu FKA þann 19. maí 2021 kusu félagskonur sér nýjan formann. Sigríður Hrund Pétursdóttir, fjárfestir og eigandi Vinnupalla er nýr formaður FKA til næstu tveggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FKA.

Stjórn FKA er skipuð sjö konum og tveimur til vara og koma þrjár nýjar konur inn í stjórn FKA til næstu tveggja ára. Nýjar stjórnarkonur eru Edda Rún Ragnarsdóttir, innanhússarkitekt og eigandi ERR Design, Katrín Kristjana Hjartardóttir sérfræðingur hjá Origo og Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður Þjóðminjasafns Íslands.

Tvær konur til viðbótar sem fengu næstflest atkvæði í stjórn verða varakonur í stjórn til eins árs. Það eru þær Eydís Rós Eyglóardóttir, eigandi, framkvæmda- & fjármálastjóri og Elísabet Tanía Smáradóttir, mannauðsstjóri Hertz Íslandi.

Stjórnarkonur sem verða áfram í stjórn eru Dr. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, stofnandi og eigandi Mundo, Unnur Elva Arnardóttir, forstöðumaður hjá Skeljungi og Vigdís Jóhannsdóttir, markaðsstjóri Stafræns Íslands og stjórnarformaður Hannesarholts.

„Félagskonur FKA kusu fjölbreytni að leiðarljósi, sem á að endurspegla atvinnulífið. Félagskonur hafa sýnt kjark, úthald, þor og æðruleysi á tímum heimsfaraldurs og er ný stjórn full tilhlökkunar að takast á við nýtt gróskuríkt og kraftmikið starfsár," segir Sigríður Hrund Pétursdóttir nýr formaður FKA, í tilkynningunni.