Sigurður Már Jónsson.
Sigurður Már Jónsson.

Sigurður Már Jónsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

Hann er m.a. fyrrverandi blaðamaður á Viðskiptablaðinu og var um skeið ritstjóri þess. Hann hefur undanfarið séð um viðskiptaumfjöllun á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is

Sigurður Már mun starfa í forsætisráðuneytinu og hefur störf 1. október næstkomandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Jóhann Hauksson var áður upplýsingafulltrúi vinstristjórnar Samfylkingarinnar og VG.