Sigurjón Kristjánsson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri Medcare Flögu hf. Þessi breyting kemur í kjölfar þess að forstjóri félagsins hefur flutt til Bandaríkjanna og mun Sigurjón taka að sér ýmis verkefni í höfuðstöðvum félagsins á Íslandi. Sigurjón mun jafnframt áfram stýra allri vöruþróun Medcare eins og hann hefur gert frá því að hann hóf störf hjá félaginu árið 1994. Sigurjón sat í stjórn félagsins í 8 ár, þar af 5 ár sem stjórnarformaður.