Sigursteinn Ingvarsson hefur í dag verið ráðinn fjármálastjóri Samherja hf. og tekur við starfi fráfarandi fjármálastjóra Guðmundar Baldvins Guðmundssonar.  Sigursteinn mun hafa umsjón með rekstri fjármála- og upplýsingasviðs Samherja hf.

Undanfarin þrjú ár hefur Sigursteinn starfað að ýmsum sérverkefnum á vegum félagsins s.s. við innleiðingu á nýju upplýsingakerfi, fjármálum söludeildar, uppgjörum og ársreikningagerð, ásamt því að hafa starfað sem staðgengill fjármálastjóra.

Sigursteinn er rekstrarfræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og starfaði í tæp fimm ár hjá endurskoðunarfyrirtækinu KPMG áður en hann hóf störf hjá Samherja.

Sigursteinn er kvæntur Ingu Völu Magnúsdóttur og eiga þau tvær dætur.