„Nýverið tengdist Síminn beint  við Google, sem er einn alstærsti efnisveitandinn á netinu sem rekur meðal annars einnig YouTube," segir í fréttatilkynningu frá Símanum.   „Beintengingin eykur gæði á nettengingum viðskiptavina Símans við Google og YouTube.   Síminn tengist beint inn í net Google án þess að fara gegnum net annarra aðila. Þetta bætir bæði svartíma og bandbreidd og minnkar þar með líkur á töfum, teppum og öðrum vandamálum sem annars kynnu að verða við flutning þegar hann fer í  gegnum aðra aðila," kemur fram í tilkynningunni.

Tengingin við Google er í gegnum netgátt Símans í London og er 1Gb/s fyrst um sinn en verður stækkuð í 10Gb/s á næstu misserum.