Slitastjórn LBI hf., gamla Landsbankans, hefur valið Símann til að sjá um hýsingu og rekstur tölvukerfis slitanefndarinnar til næstu þriggja ára. Í tilkynningu frá Símanum segir að samningurinn sé einn sá umfangsmesti sem Síminn hefur gert á þessu sviði. Samið var í kjölfar útboðs.

Síminn útvegar LBÍ alla netþjóna úr sýndarumhverfi sínu auk stýrikerfa, SAN gagnapláss, afritunar, eldveggja og annarra öryggismála.  Síminn sér um allan daglegan rekstur miðlægs kerfis og notendaþjónustu, bæði á erlendum eða innlendum starfsstöðvum slitastjórnarinnar.

„LBI gerir miklar kröfur til öryggis kerfisins og agaðra vinnubragða og sjáum við því að samstarfið verður bæði krefjandi og skemmtilegt,“ segir Guðmundur Stefán Björnsson, framkvæmdastjóri Sölu- og þjónustusviðs í tilkynningu vegna samningsins.

„Síminn vinnur eftir vottuðum vinnuferlum í samskiptum við fyrirtæki auk þess að vera með Microsoft Premier þjónustusamning sem gefur aðgang að  tæknisérfræðingum Microsoft innan klukkustundar komi upp alvarleg bilun,“ segir hann.