Síminn hefur nú tekið í notkun útlandatengingu um nýja Danice sæstrenginn sem liggur á milli Íslands og Danmerkur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum en eftir þessa stækkun hefur Síminn um það bil tvöfaldað bandbreiddina til og frá Íslandi frá því í byrjun þessa árs.

Með tengingunni er Síminn í fyrsta sinn í 103 ára sæstrengjasögu fyrirtækisins með fjóra sæstrengi tengda og er bandvíddargeta og öryggi það besta frá upphafi.  Hinir þrír sæstrengirnir eru Farice, Cantat-3 og Greenland Connect en Síminn tengdist þeim síðastnefnda fyrir nokkrum vikum um Grænland og vestur um haf.