Hjúkrunarheimilið Sóltún er rekið af hlutafélaginu Öldungi hf. undir stjórn Önnu Birnu Jensdóttur, framkvæmdastjóra og hjúkrunarforstjóra Öldungs. Sóltún er fyrsta og jafnframt eina hjúkrunarheimilið á Íslandi sem rekið er með þessum hætti.

Anna Birna segir í viðtali við Viðskiptablaðið að mikill munur sé á einkarekstri annars vegar og einkavæðingu hins vegar.