Sjálfkjörið verður í stjórn Glitni en framboðsfrestur rann út í dag. Framboð í aðalstjórn. Björn Ingi Sveinsson, Haukur Guðjónsson, Jón Sigurðsson, Katrín Pétursdóttir, Pétur Guðmundarson, Skarphéðinn Berg Steinarsson og Þorsteinn M. Jónsson.

Varamenn: Eiríkur S. Jóhannsson, Gunnar Karl Guðmundsson, Jón Björnsson, Kristinn Bjarnason, Kristinn Þór Geirsson, Paul Richmond Davidson og Smári S. Sigurðsson.

Þar sem fjöldi þeirra sem gefa kost á sér í stjórn og varastjórn bankans er jafn fjölda stjórnasæta er sjálfkjörið.