Sjálfkjörið var í stjórn fasteignafélagsins Regins á aðalfundi félagsins sem fram fór í dag. Á fundinum tók að mestu ný stjórn við hjá Reginn. Benedikt K. Kristjánsson, sölu- og þjónustufulltrúi, gaf einn kost á sér áfram og var hann sjálfkjörinn formaður stjórnar fasteignafélagsins. Hann tók við af Elínu Jónsdóttur, fyrrverandi forstjóra Bankasýslunnar, sem gaf ekki kost á sér áfram. Frestur til að skila inn framboðum í stjórn félagsins rann út í gær.

Nýir stjórnarmenn Regins eru Jón Steindór Valdimarsson, Bryndís Hrafnkelsdóttir, Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir og Tómas Kristjánsson.

Ásamt Elínu hverfa úr stjórninni þau Guðríður Friðriksdóttir, Stanley Pálsson og Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir.Hjördís verður áfram í varastjórn ásamt Finni Reyr Stefánssyni.