Í tilefni af sameiningu Skipta hf. og Símans hf. hafa félögin skuldbundið sig gagnvart Samkeppniseftirlitinu til þess að auka sjálfstæði Mílu ehf. sem rekstraraðila grunnfjarskiptakerfis og tryggja með því að markmið ákvörðunar nr. 6/2013, Breytingar á skipulagi Skiptasamstæðunnar, nái fram að ganga. Síminn og Míla hafa gert sátt við Samkeppniseftirlitið sem miðar að þessu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Samkvæmt ákvörðuninni skuldbundu Skipti sig til að gera umfangsmiklar breytingar á skipulagi og háttsemi Skiptasamstæðunnar í því skyni að efla samkeppni.

„Með þeirri ákvörðun lauk rannsókn á nokkrum kvörtunum sem keppinautar Símans höfðu beint til Samkeppniseftirlitsins. Rannsóknin beindist að því hvort Síminn hefði brotið gegn banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Í ákvörðuninni var höfð hliðsjón af eldri málum, þar sem Síminn og fyrirrennarar hans höfðu verið taldir misnota markaðsráðandi stöðu sína,“ segir í tilkynningu.

Með sameiningu Skipta og Símans verða breytingar á samstæðunni sem kalla á breytingar á fyrrgreindri ákvörðun. Í stað þess að Síminn og Míla séu systurfélög undir móðurfélaginu Skiptum, verður Míla nú dótturfélag Símans.

Nánar á vef Samkeppniseftirlitsins .