Landssamband sjálfstæðiskvenna fagnar framboði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur til formanns Sjálfstæðisflokksins.

Þetta kemur fram í ályktun frá stjórn Landssambandi sjálfstæðiskvenna um framboð Hönnu Birnu Kristjánsdóttur en Hanna Birna er fyrsta konan sem býður sig fram til formanns í 82 ára sögu flokksins.

„Hún er sterkur leiðtogi en það hefur hún meðal annars sýnt með störfum sínum sem borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,“ segir í ályktuninni.

„Hanna Birna hefur með hugrekki sínu og hugsjónum haft kjark til að breyta stjórnmálunum í borginni og náð góðum árangri í að sætta ólík sjónarmið og fá fólk til að vinna saman að góðum málefnum fyrir íbúa borgarinnar. Sjálfstæðiskonur binda miklar vonir við Hönnu Birnu og telja að framboð hennar muni efla traust á Sjálfstæðisflokknum og auka veg hans.“