Félagsfundur Félags sjálfstæðismanna í Vestur- og miðbæ leggst gegn fyrirhuguðum hækkunum á tekjuskatti einstaklinga og heimild til hækkunar útsvars sveitarfélaga.

Jafnframt telur fundurinn ástæðu til að harma þá skattahækkun sem nýlega var samþykkt á Alþingi; hækkun bensíngjalds og áfengisgjalds.

Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu. Þar skorar félagið á þingmenn Sjálfstæðisflokksins, og borgar-og bæjarfulltrúa hans, að standa vörð um hugmyndafræði flokksins í þessum efnum og leggjast almennt gegn skattahækkunum.

„Nú, þegar fjárhagsstaða margra einstaklinga og heimila hefur skyndilega versnað til muna vegna mikillar verðbólgu, kjaraskerðingar og yfirvofandi atvinnuleysis er nauðsynlegt að lækka skatta myndarlega. Þannig verður heimilum og fyrirtækjum auðveldað að greiða skuldir sínar og hefja uppbyggingu í atvinnulífi að nýju," segir í ályktuninni.

Félagið óttast að skattahækkanir á þessari stundu muni standa í vegi fyrir því að íslenskt efnahagslíf snúi vörn í sókn. „Með boðuðum skattahækkunum er hætt við enn frekari samdrætti í efnahagslífinu."