Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti rétt í þessu ályktun um Evrópusambandsmál en í henni er mælt með tvöfaldri atkvæðagreiðslu um aðild Íslands að ESB. Litið er á ályktunina sem leið til að sætta ólík sjónarmið innan flokksins um Evrópusambandið.

Áður en ályktunin var samþykkt voru greidd atkvæði um tillögur Péturs H. Blöndals þingmanns og fleiri um að landsfundur ályktaði að Íslandi gengi ekki inn í ESB. Yfirgnæfandi meirihluti var á móti þeim tillögum.

Tillaga Evrópunefndarinnar um ESB var samþykkt með þorra atkvæða.  Björn Bjarnason þingmaður orðaði það sem svo, áður en atkvæðagreiðslan fór fram, að ályktunin endurspeglaði þær umræður sem átt hefðu sér stað á fundinum um málið. Þá sagði hann að hún kæmi í veg fyrir það að sjálfstæðismenn gengu sem sundraður hópur frá fundinum. Skoraði hann á fundinn að samþykkja hana.

Nokkrar breytingar voru gerðar á ályktuninni eftir umræðurnar í morgun. Hún er í heild er svohljóðandi:

„Sjálfstæðisflokkurinn hefur talið að aðild að Evrópusambandinu þjóni ekki hagsmunum íslensku þjóðarinnar en jafnframt er talið mikilvægt að sífellt sé í skoðun hvernig hagsmunum Íslands verði best borgið í samstarfi Evrópuríkja.

Endurnýjað hagsmunamat hefur ekki leitt til grundvallarbreytinga á afstöðu Sjálfstæðisflokksins. Kostir aðildar tengjast helst gjaldmiðilsmálum og ljóst að ýmis álitamál verða aðeins skýrð í viðræðum, hvort sem þær snúast um gjaldmiðilinn eða um aðild. Sterk lýðræðisleg rök mæla engu að síður með því að þjóðin fái að skera úr um svo stórt og umdeilt mál og að það sé ekki eingöngu á forræði stjórnmálaflokkanna.

Landsfundurinn undirstrikar þá eindregnu stefnu Sjálfstæðisflokksins að ekki verði gefin eftir til annarra þjóða eða samtaka þeirra yfirráð yfir auðlindum Íslands og að standa beri vörð um innlenda matvælaframleiðslu.

Landsfundur telur að setja skuli almenn lög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna og þær lágmarkskröfur sem gera á um stuðning við mál á Alþingi og við þjóðaratkvæðagreiðslu. Komist Alþingi eða ríkisstjórn að þeirri niðurstöðu að sækja  beri um aðild að Evrópusambandinu er það skoðun Sjálfstæðisflokksins að fara skuli fram þjóðaratkvæðagreiðsla um þá ákvörðun á grundvelli skilgreindra markmiða og samningskrafna.

Sjálfstæðisflokkurinn ítrekar þá afstöðu sína að hugsanleg niðurstaða úr samningsviðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði ávallt borin undir þjóðaratkvæði."