Sjö manns koma nýir inn í framkvæmdastjórn Marel, en framkvæmdastjórnin hefur verið breikkuð. Í tilkynningu frá Marel segir að þessar breytingar styrki stjórnina í að framkvæma stefnu félagsins og auðvelda henni að ná langtímamarkmiðum sínum.

Nýir liðsmenn framkvæmdastjórnarinnar eru:

Anton de Weerd, yfirmaður iðnaðarseturs kjúklings
Jón Birgir Gunnarsson, yfirmaður iðnaðarseturs fisks
Gerrit den Bok, yfirmaður iðnaðarseturs frekari vinnslu
David Wilson, yfirmaður iðnaðarseturs kjöts
Pétur Guðjónsson, yfirmaður alþjóðlegar sölu- og þjónustu
Paul van Warmerdam, yfirmaður alþjóðlegrar framleiðslu- og aðfangastýringar
Davíð Freyr Oddsson, yfirmaður mannauðsmála

Auk þessara aðila sitja í framkvæmdastjórninni þeir Árni Oddur Þórðarson forstjóri, Erik Kaman fjármálastjóri og Sigsteinn Grétarsson aðstoðarforstjóri.