Tap Íbúðalánasjóðs nemur 167 milljörðum króna en uppgreiðsluáhætta nemur að auki 100 milljörðum króna. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð.

VB Sjónvarp ræddi við Kirstínu Flygenring hagfræðing og Jón Þorvald Heiðarsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskólans á Akureyri.