© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Verðbólgan hér á landi er sú sjötta mesta af öllum ríkjum EES og ekki kæmi á óvart að Ísland færðist enn lengra upp listann á næstu mánuðum. Þetta segir í morgunkorni greiningar Íslandsbanka í dag. Verðbólgan á evrusvæðinu mældist 2,7% í mánuðinum, samkvæmt samræmdu vísitölu neysluverðs. Sé miðað við Evrópska efnahagssvæðið (EES) í heild mælist verðbólga nokkuð meiir, eða 3,2%.

Verðbólga lækkaði lítillega frá fyrri mánuði, en hún mældist 2,8% á evrusvæðinu í apríl og 3,3% á EES svæðinu. „Ekki er sömu sögu að segja um þróun verðbólgunnar hér á landi. Á þennan kvarða mældist verðbólgan 4,3% í maí síðastliðnum og eykst því töluvert frá því í apríl en þá mældist hún 3,1%. Er verðbólgan hér á landi því enn á ný orðin meiri en í flestum löndum Evrópu en sem kunnugt er þá hafði hún mælst undir meðalverðbólgu í ríkjum EES fyrstu fjóra mánuði ársins,“ segir greiningin.

Af ríkjum EES mældist verðbólga mest í Rúmeníu (8,5%) og var verðbólgan þar jafnframt mun meiri en á Eistlandi (5,5%) og svo Litháen (5,0%) sem komu næst þar á eftir. Minnst mældist verðbólgan á Írlandi (1,2%) af löndum EES og næst þar á eftir komu Noregur (1,6%) og Svíþjóð (1,7%)