Frá því er greint í fréttum RÚV í dag að Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone, segi að ákveðið hafi verið að færa Sjóvá undir sænska eignarhaldsfélagið Moderna, þar sem meiri vaxtarmöguleikar séu utan landsteinanna.

Samkvæmt frétt RÚV hafa gengissveiflur íslensku krónunnar, háir stýrivextir og mikil verðbólga áhrif á ákvörðunina.

Félagið Moderna er í eigu Milestone.