Ljóst er að mikil samkeppni í millilandaflugi bítur í rekstur þeirra félaga sem að því standa. Mikil samkeppni á milli lággjaldafélaganna Wow air og Iceland Express hefur verið áberandi í sumar og mikið um hana fjallað.

VB Sjónvarp ræddi við Skarphéðin Berg Steinarsson, forstjóra Iceland Express, um samkeppnina og áhrif hennar á félagið í sumar.