Stjórn ISB holding hefur verið tilkynnt að ákveðið hafi verið að skipta um stjórn. Núverandi stjórn ISB holding skipa Ólafur Ísleifsson, formaður stjórnar, Ásta Þórarinsdóttir og María Björg Ágústsdóttir. ISB holding fer með 95% hlut í Íslandsbanka. Tilkynnt verður um nýja stjórnarmenn ISB holding þegar FME hefur metið hæfi þeirra.