Skipulag sölu og markaðsmála hjá Icelandair hefur verið einfaldað, millistjórnendum fækkað og nýtt fólk ráðið til starfa.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

„Breytingarnar eru gerðar með það að leiðarljósi að efla markaðs- og sölustarfsemina, stytta ákvörðunarferli og einfalda boðleiðir.  Meðal annars hafa deildir markaðsmála, jaðartekna, Saga Boutique og Vildarklúbbsins verið sameinaðar í eina deild markaðs- og viðskiptaþróunar,“ segir í tilkynningunni.

Guðmundur Óskarsson , sem verið hefur markaðsstjóri Icelandair í Skandinavíu, hefur verið ráðinn forstöðumaður markaðsmála og viðskipaþróunar.  Guðmundur hóf störf hjá Icelandair árið 2004 sem markaðsstjóri Icelandair í Mið-Evrópu og hann hefur verið markaðsstjóri í Skandinavíu frá árinu 2006.

Guðmundur er með gráður í viðskiptum og alþjóðasamskiptum frá Penn State University og University of Leipzig.  Áður en Guðmundur hóf störf hjá Icelandair, starfaði hann á markaðssviði stórnotenda hjá Olís og sem markaðs- og innkaupastjóri hjá Vatnsvirkjanum.

Guðmundur er 32 ára gamall og er í sambúð með Kristínu Þorelifsdóttur viðskiptafræðingi.

Bjarni Birkir Harðarson , sem verið hefur sölustjóri Icelandair í Noregi síðan september 2006, hefur verið ráðinn svæðisstjóri Icelandair í Skandinavíu með aðsetur í Kaupmannahöfn.

Bjarni lauk BS og Mastersnámi í viðskiptafræðum frá Álaborgarháskóla í Danmörku árið 2006 og hefur starfað hjá Icelandair síðan. Bjarni er 34 ára og kvæntur Rakel Guðmundsdóttur, grafískum hönnuði og viðskiptafræðinema við Háskólann á Bifröst.

Hjörvar Sæberg Högnason , sem verið hefur sölustjóri Icelandair á íslenska sölusvæðinu hefur verið ráðinn svæðisstjóri Icelandair fyrir Bretland og Írland með aðsetur í London.

Hjörvar hóf störf hjá Icelandair í mars 2004, fyrst sem sölu- og markaðsstjóri Icelandair fyrir Bretland og Írland, en hefur frá september 2006 starfað sem sölustjóri á Íslandi.  Hjörvar er með B.Sc. gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniskóla Íslands (nú Háskólinn í Reykjavík) og Helsinki Business Polytechnic.

Hjörvar er 33 ára gamall og er kvæntur Svövu Kristínu Þórisdóttur snyrtifræðingi og eiga þau tvö börn.