„Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur skipað starfshóp sem kanna á hvernig jafna megi stöðu foreldra sem fara sameiginlega með forsjá barna sinna með tilliti til réttinda, skyldna og skráningar sem fylgir lögheimili barns." Þetta kemur fram í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu.

Aðdragandi skipunarinnar er sá að þann 12. maí 2014 samþykkti Alþingi þingsályktun þess efnis að starfshópurinn yrði skipaður og að hann myndi meðal annars taka „afstöðu til þess hvort taka skuli upp kerfi sem heimilar börnum að hafa tvöfalt lögheimili eða hvort annað fyrirkomulag jafnrar búsetu henti betur. Ráðherra skili þinginu skýrslu um niðurstöður starfshópsins eigi síðar en 1. mars 2015."

Starfshópnum er ætlað að koma með tillögur að því hvernig eyða megi aðstöðumun sem er á heimilum þegar foreldrar sem búa ekki saman ákveða að ala börn sín upp saman á tveimur heimilum.

Starsfhópinn skipa:

  • Þórhildur Líndal, forstöðumaður Rannsóknarstofnunar Ármanns Snævarr um fjölskyldumál og jafnframt formaður, tilnefnd af innanríkisráðherra,
  • Guðríður Bolladóttir, lögfræðingur í velferðarráðuneytinu, tilnefnd af félags- og húsnæðismálaráðherra,
  • Pálmi Þór Másson, deildarstjóri hjá lögfræðideild Kópavogsbæjar, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
  • Rakel Þráinsdóttir, lögfræðingur hjá Sýslumanninum á Suðurnesjum, tilnefnd af Sýslumannafélagi Íslands,
  • Sólveig Jóhanna Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá Þjóðskrá Íslands, tilnefnd af Þjóðskrá Íslands.