Áslaug Thorlacius
Áslaug Thorlacius
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Áslaug Thorlacius hefur verið ráðin skólastjóri Myndlistaskólans í Reykjavík. Áslaug hefur lokið BA námi í myndlist og rússnesku auk þess að hafa lokið kennaraprófi frá Listaháskóla Íslands.

Hún starfaði við Myndlistaskólann 2001–2003 og leysti af við deildarstjórn síðastliðið ár. Áslaug starfaði sem framkvæmdastjóri Samtaka um kvennalistann og var framkvæmdastjóri Sambands íslenskra myndlistamanna til ársins 2009 þar sem hún vann að réttindamálum myndlistarmanna.