Staða markaðsskuldabréfa í lok september 2009 nam tæpum 1.527 milljörðum króna og lækkaði um 3,3 milljarða í mánuðinum, samanborið við hækkun upp á 13,4 milljarða í mánuðinum á undan.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en staða markaðsskuldabréfa nam á sama tíma í fyrra tæpum 1.868 milljörðum króna og tæpum 1.513 milljörðum króna í upphafi þessa árs.

Skráð bréf atvinnufyrirtækja lækkuðu mest í mánuðinum, annan mánuðinn í röð, eða um 6,5 milljarða króna og nam staða þeirra í lok september um 243,6 milljörðum króna. Staða skráðra bréfa atvinnufyrirtækja nam í upphafi þessa árs um 335,6 milljörðum króna.

Staða ríkisbréfa nam 302 milljörðum króna í lok september og hækkaði á milli mánaða eða um 1,3 milljarða en hafði á ágúst hækkað um 20 milljarða. Á sama tíma í fyrra nam staða ríkisbréfa um 181 milljarði króna en rúmlega 235 milljörðum í upphafi þessa árs.

Íbúðabréf hækkuðu um 920 milljónir króna í september en höfðu í ágúst lækkað um 2,6 milljarða króna. Þannig nam staða íbúðabréfa í lok september rúmum 687 milljörðum króna, samanborið við tæpa 597 milljarða á sama tíma í fyrra og rúman 651 milljarð í upphafi þessa árs.

Markaðsvíxlar hækkuðu um tæpa 3,6 milljarða á milli mánaða í september eftir að hafa lækkað um 7,8 milljarða í ágúst. Þannig nam staða markaðsvíxla um 138,2 milljörðum króna í lok september, samanborið við 378,3 milljarða í fyrra.

Þá lækkuðu hlutabréf sem skráð eru í Kauphöllinni um rúmar 1,8 milljarða eftir að hafa hækkað um tæpa 13,5 milljarða í ágúst. Staða skráðra hlutabréfa nam þannig 203,7 milljörðum króna í lok september en hlutabréf hafa hins vegar, eins og gefur að skilja, lækkað verulega frá sama tíma í fyrra þegar staða þeirra nam 1.335 milljörðum króna. Staða hlutabréfa í upphafi árs nam 217,3 milljörðum króna.