Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,92% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um ein 1,2% og sá óverðtryggði um 0,23%. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 22,9 milljörðum króna og skiptist nokkuð jafnt milli verðtryggðra og óverðtryggðra bréfa.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,51% og stendur í 1003,02 stigum. Bréf Haga hækkuðu um 0,93%, Regins um 0,55% og Icelandair um 0,52%. Gengi bréfa Eimskips lækkaði aftur á móti um 1,33%. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam 313,2 milljónum króna í dag.