Kauphöll Íslands, NASDAQ OMX Iceland hf., hefur samþykkt beiðni Tryggingamiðstöðvarinnar hf. um töku skuldabréfaflokks TM 06 1 úr viðskiptum. Skuldabréfaflokkurinn verður tekinn úr viðskiptum við lok viðskipta miðvikudaginn 31. ágúst 2011.

Skuldabréf Tryggingamiðstöðvarinnar (TM 06 1) voru skráð í Kauphöll þann 18. desember 2006.