Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,69% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,96% en sá óverðtryggði hækkaði um 0,05%. Velta á skuldabréfamarkaði nam alls 35,8 milljörðum króna.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,02% í dag. Gengi bréfa Icelandair hækkaði um 0,60% og Marels um 0,32%. Gengi bréfa Regins lækkaði aftur á móti um 1,10% og bréf Fjarskipta um 0,15%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 411,6 milljónum króna.