Eric Joyce
Eric Joyce

Þingmaður breska verkamannaflokksins, Eric Joyce, var handtekinn í gærkvöld á barnum Strangers Bar í breska þinghúsinu, en barinn er eingöngu fyrir þingmenn og gesti þeirra. Er Joyce sagður hafa ráðist á að minnsta kosti þrjá aðra þingmenn, bæði þingmenn Íhaldsflokksins og einn samflokksmann hans í Verkamannaflokknum. Er hann meðal annars sagður hafa „skallað“ Stuart Andrew, þingmann Íhaldsflokksins.

Er hann sagður hafa gengið berserksgang á barnum og þurfti marga menn til að halda aftur af honum þar til lögreglan mætti til að handtaka hann. Í kjölfarið var honum vísað úr Verkamannaflokknum á meðan rannsókn stendur yfir á málinu.