Snap Inc., móðurfélag Snapchat, stefnir að skráningu á markað vestanhafs, samkvæmt heimildum Reuters fréttastofunnar. Þetta gæti gerst í mars á næsta ári. Þetta kemur fram í grein CNN Money .

Markaðsvirði fyrirtækisins er á bilinu 20 til 25 milljörðum dollara. Facebook bauðs til þess að kaupa Snapchat fyrir þremur árum á 3 milljarða dollara. Líklegt er að Morgan Stanley og Goldman Sachs aðstoði við skráninguna.