Stjórn Somerfield hefur ákveðið að halda ekki áfram viðræðum við Baug um kaup Baugs á félaginu. Í frétt frá Somerfield segir að eftir að hafa óskað frekari upplýsinga frá Baugi hafi félagið komist að þeirri niðurstöðu að engin vissa væri fyrir að tilboð fengist á viðunandi verði segir í Hálffimm fréttum KB banka.