Stjórn verslunarkeðjunnar Somerfield tilkynnti í dag að hún myndi mæla með yfirtökutilboð fjárfestahóps leiddum af Apax fjárfestingarsjóðnum. Tilboðið frá hópnum hljóðar upp á 1,08 ma. GBP en það samsvarar 197 pensum á hlut. Þetta er hópurinn sem Baugur átti upphaflega aðild að en dró sig svo út úr þegar ákærur í Baugsmálinu voru birtar. Má því segja að þessari sögu sé nú lokið en hún hófst 9. febrúar síðastliðinn með tilboði Baugs upp á 190 penns á hlut. Þetta kemur fram í Hálffimm fréttum KB banka.

Þar segir ennfremur að þó að því tilboði hefði verið hafnað, vakti það áhuga fjárfesta á Somerfield og voru á tímabili að minnsta kosti 4 hópar sem bitust um félagið. Þó hafði þeim sem sýndu áhuga fækkað jafnt og þétt eftir því sem á leið áreiðanleikakönnunina og var Apax hópurinn einn eftir undir lokin. Hafði Somerfield gefið Apax hópnum frest til dagsins í dag til að skila inn tilboði í félagið. Tilboðið er þó nokkru lægra en sérfræðingar í Bretlandi höfðu búist við en væntingar voru um allt að 220 penns á hlut. Verð á hlutabréfum Somerfield hækkað nokkuð í kjölfar tilkynningarinnar í dag, úr 189 pensum á hlut í 193 penns, eða um 3,21%.

Byggt á Hálffimm fréttum KB banka.