Sparisjóðabanki Íslands hf. hefur fengið frest til 28. febrúar næstkomandi til að leggja fram frekari tryggingar í kjölfar veðkalls sem Seðlabanki Íslands sendi bankanum hinn 20. október síðastliðin að því er kemur fram í tilkynningu félagsins.

Þar kemur fram að unnið er að því að afla samþykkis annarra stærstu lánveitenda bankans fyrir jafn löngum fresti, en þeir lánveitendur eru aðallega erlendir bankar. Að undanförnu hefur verið unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu bankans með framangreindum aðilum og mun sú vinna halda áfram næstu vikurnar. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sömuleiðis veitt bankanum jafn langan frest til þess að koma eiginfjárgrunni sínum aftur í horf sem uppfyllir skilyrði laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.