Landsbankinn hf. hefur skrifað undir samkomulag við Sparisjóð Norðurlands ses. um að hafinn verði undirbúningur að samruna félaganna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að stjórn sparisjóðsins hafi leitað til Landsbankans þann 9. júní sl. til að kanna áhuga á samruna vegna óvissu um framtíð sjóðsins og viðræður hafi staðið frá þeim tíma.

Sameinað fyrirtæki yrði rekið undir nafni Landsbankans og við hann rynnu allar eignir og skuldbindingar sparisjóðsins inn í Landsbankann og hann tæki við rekstri allra útibúa sjóðsins.

Samkvæmt því samkomulagi sem fyrir liggur munu stofnfjáreigendur í sparisjóðnum fá greitt með hlutabréfum í Landsbankanum. Heildarendurgjald til þeirra yrði 594 milljónir króna með fyrirvara um áreiðanleikakönnun.

„Stjórn Sparisjóðs Norðurlands ses. óskaði eftir afstöðu Landsbankans til samruna félaganna í ljósi þess að sjóðurinn hefur ekki uppfyllt kröfur eftirlitsaðila um eiginfjárhlutfall. Að fengu samþykki eftirlitsaðila teljum við að samruni fyrirtækjanna geti gengið greiðlega fyrir sig og að Landsbankinn geti haldið úti öflugri þjónustu á svæði Sparisjóðs Norðurlands,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.