Sparisjóður Mýrasýslu (SPM) hefur breytt hluta skulda hjá AFL - sparisjóði og Sparisjóði Ólafsfjarðar í stofnfé.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en um er að ræða stofnfjáraukningu í AFL - sparisjóði að andvirði 500 milljóna króna og hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar að fyrir 330 milljónir króna.

„Með þessu er búið að koma eiginfjárstöðu þessara tveggja sparisjóða í gott horf og tryggja áframhaldandi starfsemi sjóðanna,“ segir í tilkynningunni en ofangreindir sjóðir eru dótturfélög Sparisjóðs Mýrasýslu.