Fundur með kröfuhöfum Sparisjóðs Mýrasýslu (SPM) verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 22. september 2009 kl. 15:00 að Hilton Hotel Nordica en sem kunnugt er var SPM skipuð bráðastjórn í byrjun júlí s.l.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en á fundinum verður fjallað um núverandi stöðu sparisjóðsins. Þá verður á fundinum leitað eftir meðmælum kröfuhafa með frumvarpi að nauðasamningi, sem öllum þekktum kröfuhöfum hefur áður verið kynnt.

„Ef nægilegur fjöldi kröfuhafa veitir meðmæli með nauðasamningsumleitunum hyggst bráðabirgðastjórn senda formlega beiðni til héraðsdóms, fyrir 2. október n.k., um heimild til að leita nauðasamnings. Ella telur bráðabirgðastjórn að henni beri að vísa málefnum SPM til Fjármálaeftirlitsins til ákvörðunartöku,“ segir í tilkynningunni.

Rétt til setu á fundinum eiga þeir sem eiga kröfu á sparisjóðinn.

Bráðabirgðastjórn fer með sömu heimildir að lögum og samþykktum sparisjóðsins sem stjórn og fundur stofnfjáreigenda sparisjóðsins hefði ella haft á hendi. Á meðan bráðabirgðastjórn ræður yfir sparisjóðnum gilda sömu takmarkanir á heimildum til að beita fullnustugerðum og öðrum þvingunarúrræðum gagnvart honum og ef sparisjóðurinn hefði fengið heimild til greiðslustöðvunar.

Yfirráðum bráðabirgðastjórnar yfir SPM lýkur 2. október n.k., nema bráðabirgðastjórn hafi þá lagt fyrir héraðsdóm kröfu um að sjóðurinn verði tekinn til slita, honum veitt heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamninga, eða ný stjórn hafi verið kjörin til að leysa bráðabirgðastjórn af hólmi.