Ísland hefur hækkað um tvö sæti í úttekt IMD viðskiptaháskólans á stafrænni samkeppnishæfni og fer því úr 23. og upp í 21. sæti af 63. Frá 2014 hefur Ísland hækkað um sex sæti á listanum. Á tímum fordæmalausra tæknibreytinga og stafrænnar þróunar eru þetta gleðitíðindi. Einnig er jákvætt að Ísland sé að bæta sig á þessu sviði í því ljósi að heildarsamkeppnishæfni landsins fór dvínandi skv. úttekt IMD sem birt var í maí. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Viðskiptaráði Íslands.

Bandaríkin náðu í ár efsta sætinu af Singapúr sem fellur niður í 2. sætið. Í næstu sætum eru hin Norðurlöndin ásamt Sviss. Það er því sama upp á teningnum í stafrænni samkeppnishæfni líkt og í heildarsamkeppnishæfni ríkja – Ísland er langt að baki hinum Norðurlöndunum. Þetta er áhyggjuefni því Ísland vill almennt bera sig saman við hin Norðurlöndin og niðurstöðurnar gefa til kynna að við stöndum ekki jafn vel að vígi og þau þegar kemur að fjórðu iðnbyltingunni.

„Vissulega eru það gleðitíðindi að Ísland feti upp listann en þó svekkjandi að sjá okkur svo langt á eftir nágrannaþjóðum okkar sem raða sér í efstu sætin. Ef við ætlum að auka verðmætasköpun í landinu og treysta ekki einvörðungu á núverandi grunnstoðir þá er þekking og færni á sviði stafrænnar tækni og gervigreindar lykilatriði. Þetta er ekki spurning um að kunna á snjallsímaforrit og geta verslað á netinu. Þetta er spurning um að tryggja að atvinnulífið, hið opinbera og mennta- og skólakerfið sé samstillt um að gera Ísland að aðdráttarafli fyrir alþjóðleg tæknifyrirtæki í hvaða geira sem það kann að vera, þar sem innviðir, rekstrarumhverfi, færni og þekking styðja við nýsköpun og framþróun" er haft eftir Ástu S. Fjeldsted, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs í tilkynningunni.