Þrír karlar á þrítugsaldri hafa játað að hafa brotist inn á tveimur stöðum í austurborginni í fyrrinótt og stolið peningaskápum. Skófar á vettvangi kom upp um einn mannanna og í kjölfarið voru tveir aðrir handteknir.

Þetta kemur fram á vef Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu. Þar kemur fram að þjófarnir hafi að vísu farið tómhentir frá fyrri staðnum þar sem þeim hafi mistekist að opna peningaskápinn og hann jafnframt reynst of þungur til að flytja. Í framhaldinu hafi þeir brotist inn hjá öðru fyrirtæki og haft þaðan tvo peningakassa á brott, farið með þá á afvikinn stað og brotið þá upp. Í skápunum var að vinna reiðufé sem að sögn lögreglunnar var skipt bróðurlega á milli mannanna.

„Eftir að lögreglu barst tilkynning um innbrotin þennan sama morgun var á litlu að byggja við rannsókn málsins utan þess að skófar fannst á vettvangi,“ segir á vef lögreglunnar.

„Það og brjóstvit lögreglumanna leiddi þó til þess að skömmu síðar var bankað upp á hjá manni sem hefur áður komist í kast við lögin. Sá kom svefndrukkinn til dyra og var lítt um þessa heimsókn gefið. Í forstofu hans var hinsvegar að finna skó sem ástæða þótti til að skoða nánar og þá tók hringinn að þrengja en húsráðandi var handtekinn og fluttur á lögreglustöð.“

Þá kemur fram að annar maður hafi síðan verið vakinn upp af værum blundi skömmu seinna í öðru húsi á höfuðborgarsvæðinu en hann var sömuleiðis viðriðinn málið og því færður til yfirheyrslu. Hjá þeim báðum fundust peningar sem mennirnir höfðu stolið úr peningaskápunum. Þriðji maðurinn var svo handtekinn um hádegisbil. Sá hafði að sögn lögreglunnar eytt sínum hluta af ránsfengnum, m.a. í áfengi.

„Bæði innbrotin teljast upplýst og liggur játning mannanna fyrir eins og áður segir. Tekist hefur að endurheimta meirihlutann af ránsfengnum en það verður að segjast að tímakaup þremenninganna við þessa vafasömu iðju var frekar lélegt enda voru ekki miklir fjármunir í peningaskápunum. Þess má geta að mennirnir hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu,“ segir á vef lögreglunnar.

Lögreglan
Lögreglan
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)